Í ţungum ţönkum....og sérstökum......Auja

 

Fyrir einstaka tilviljun rakst ég á úrdrátt sem má eiginlega kalla grein sem einstaklingur sem er með BA próf í mannfræði og sálfræði skrifaði og er mastersritgerð í afbrota og atferlisfræði. Þetta var mjög áhugaverð lesning og hugur minn fór á flug við lesturinn. Í henni er sagt að afbrot eru ekki bara afbrot, því til eru margs konar afbrot og þau fléttast inn í atferlisfræði á sérstakan hátt. Við mannfólkið erum þeim eiginleikum gædd að eiga tilfinningar, og það er stór og mikil flóra sem við ráðum ekki alltaf við og vitum stundum ekki hvernig á að vinna úr. Mörgum reynist það ofviða og aðrir sannfæra jafnvel sjálfan sig um eitthvað annað í lífinu en það er í raun og veru sem tengist lífinu og tilverunni mjög sterkum böndum. Í greininni er farið inn á svið tilfinninga sem greinarhöfundur tengir atferlisfræðinni, veltum aðeins þessum orðum fyrir okkur:

 

"TILFINNINGALÍF okkar er fjölbreytt og margslungin flóra. Erfitt er að henda reiður á blæbrigðum tilfinninga og erfitt að hafa á þeim stjórn. En af hverju stafa þær? Hvers vegna ráða þær svo miklu? Hvers vegna eru þær svo flóknar sem raun ber vitni? Og hvernig eru tengsl tilfinninga við aðra þætti í sálarlífinu?
Tilfinningar hafa mun meiri áhrif en við gerum okkur almennt grein fyrir. Augljósust eru áhrifin í afgerandi, sterk­um verkum en ekki eins auð­fundin í venjulegum, aðgerðalitlum, dag­legum athöfnum. En grunnur allra athafna er skynjanir, hugsanir, tilfinn­ingar, afstöður, venjur eða langanir -- ein flækja margra sálrænna þátta með samspili sem er að miklu leyti ómeð­vitað. Vegna þess hve lítt þetta samspil er meðvitað, eigum við erfitt með að stjórna tilfinningum eða öllu fremur þeim hugsunum og athöfnum sem af þeim spretta".

 

Það er mannlegt að gera mistök í lífinu, stundum gerum við okkur grein fyrir mistökum okkar, stundum ekki og jafnvel gerum við sömu mistökin aftur og aftur en ætlum okkur ekki að gera þau. Hvað er þá til ráða?? Því er erfitt að svara. Greinarhöfundur líkir heila okkar við tölvu og segir....."segja má að sjálfsmyndin sé það forrit sem við þörfnumst til að vita hvernig við eigum að vera eða hegða okkur dags daglega. Forritið eða stýrikerfið geymir nákvæmar upplýsingar um hvað við kunnum, getum, viljum og hvað við teljum vera rétt og rangt. Það geymir einnig leiðbeiningar um hvernig við eigum að bregðast við ólíkum aðstæðum og einstaklingum." Þetta fannst mér athyglisvert og segir okkur margt. Við mannfólkið erum misjöfn eins og við erum mörg og sem betur fer eru engir tveir einstaklingar eins (það er t.d. bannað að klóna menn). Í lífinu gerum við margt misgott, viljum ekki viðurkenna ýmislegt, lendum í erfiðum aðstæðum og missum stjórn á því. En ég held að líf okkar sé fyrirfram ákveðið og því verðum við að takast á við það eins og það kemur fyrir, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það getur verið erfitt, sárt og beiskt en kannski herða þessar aðstæður í lífinu okkur til að gera góða hluti og aðrir lært af. Yfirleitt er það þannig að við tengjum afbrot og ofbeldi saman, þetta segir í greininni: "sársauki af mannlegum völdum, líkamlegum eða andlegum gildir einu. Hvílík vanlíðan sem fylgir því. Héldu kveljendurnir ofbeldinu áfram ef þeir þyrftu sjálfir að þjást? Eða fremja þeir kannski ofbeldið af því að þeir þjást sjálfir?" Þessu er erfitt að svara og mér það lífsins ómögulegt sama hvað ég reyni.

Hafið þið velt fyrir ykkur orðinu "ljúfsárt?" Það gerði ég ekki fyrr en ég lenti inn í aðstæðum þar sem þetta orð átti svo sannarlega við, og það var skrýtin tilfinning. Öllum þykir okkur gott þegar tekið er utan um okkur, svona knús, kreist og kram, þá líður okkur vel þegar við finnum að viðkomandi leggur sig allan fram í faðmlagið. Það er líka gott að fá hrós þegar maður veit virkilega að það er meint frá hjartanum og maður á það virkilega skilið. Þegar eitthvað er sagt fallegt og gott um mann, það lyftir okkur upp á ský og okkur langar til að svífa. Stundum fáum við auka slög í hjartað og fiðring í magann, þetta könnumst við öll við líka. Best er þegar þetta er sagt óvænt við mann og jafnvel af einstaklingum sem maður á síst von á að segi svona. En maðurinn getur líka verið grimmasta dýr veraldar og er ekkert að fela það oft á tíðum í hegðun sinni og máli, það er sorgleg tilhugsun. En svona er lífið og ég fæ litlu um það ráðið hvað aðrir segja og hvernig þeir haga sér og hvernig viðkomandi kemur fram við aðra. En frá því ég var barn hef ég alltaf verið mjög hugfangin af öllu sem tengist indíánum og úlfum, og í bíómyndum þá hélt ég alltaf með þeim. Það má margt gott læra af þessari þjóð og margt fallegt sem hún hefur upp á að bjóða. Á minni ævi hef ég aðeins hitt eina manneskju sem er álíka hugfangin af indíánum og úlfum og ég, og þessi einstaklingur fræddi mig á því að indíánar reikna út eða mæla mánuði og mig minnir ár í tunglum. Maður ætti kannski að telja hvað maður sér oft tunglið og velta þessu fyrir sér, það er örugglega margt vitlausara en það. Jæja....þetta er nú að verða gott þá loksins að ég hafði mig í að henda inn einni færslu. Ég ætla að enda þetta á indíánabæn ( nú ekki hvað???)

 

Takk fyrir lesturinn.

 

Lakota Prayer.

 

Wakan Tanka, Great Mystery,
teach me how to trust
my heart,
my mind,
my intuition,
my inner knowing,
the senses of my body,
the blessings of my spirit.

Teach me to trust these things
so that I may enter my Sacred Space
and love beyond my fear,
and thus Walk in Balance
with the passing of each glorious Sun.

Sumarfrí og bloggfríAuja

Nú er búið að dressa dætur mínar upp svo að þær geti farið á mótórhjól, komnar með sitt eigið. Og þær eru sko engar smá skvísur þessar elskur Laughing Ég ætla að fara í smá bloggfrí.....veit ekki hvað lengi. Síðasta blogg fyrir frí er eftir indíánahöfðingja, ég er svo hrifin af öllu sem tengist indiánum Laughing Svo ætlaði ég fyrir löngu síðan að vera búin að setja inn hvernig könnunin fór og hvað er rétt svar sem er: endajaxl.

Sterkur (1/30) 3%
Girðingarstaur (2/30) 7%
Hraustur (5/30) 17%
Endajaxl (21/30) 70%
Veggur (1/30) 3%



Hafið það gott Kiss



Kærleikur er eitthvað sem þú og ég verðum að eiga. Við verðum að eiga hann vegna þess að andi vor nærist á honum. Við verðum að eiga hann vegna þess að án hans verðum við máttlítil og veikburða. Sjálfstraust okkar þverr án kærleika. Djörfung okkar hverfur. Við getum ekki horft  í trúfesti til heimsins. Við hverfum inn á við og förum að nærast á eigin eðlisþáttum, og smám saman eyðum  við  honum sjálf. Full kærleika erum við skapandi. Full kærleika höldum við óþreytandi áfram. Full kærleika og eingöngu í krafti hans getum við fórnað okkur fyrir aðra.

( DAN GEORGE, INDÍÁNAHÖFÐINGI )

Aftur segir Ellen jćja.....he he heAuja

  Og það þýðir væntanlega að ég þurfi að spýta í lófana, bretta upp ermar og henda hér inn einni færslu eða svo. Það er allt gott að frétta af okkur mæðgum, Lena Rut fékk vinnu á leikskóla frá 08-14 á daginn og hann er í sömu götu og við Alma búum í en samt mjög stutt fyrir hana að labba heiman að frá sér, svo að það getur varla gerst betra. Hún vinnur ekki á föstudögum en kemur samt til með að vinna nokkra. Alma Rún er að passa litla 3ja ára stelpu á daginn í ca. 2 klst. og bara nokkra daga í senn, og er það seinni partinn. Ég er bara að vinna og það er alltof langt í sumarfrí hjá mér...fer í frí 26. júlí.  Lena Rut fékk í jólagjöf orð um vinkonu frá bestu vinkonu sinni. Þetta eru mjög falleg orð og á svo sannarlega við vinkonur. Þessi orð eru bloggið mitt í dag.


Besta vinkona

 

Besta vinkona er alltaf til staðar,

þegar þú þarft ráðleggingu,

eða bara hvatningarorð,

eða jafnvel öxl til að gráta við.

 

Besta vinkona hlustar með hjarta sínu

og er alltaf heiðarleg við þig,

jafnvel þó að sannleikurinn

sé ekki það sem þú vilt heyra.

 

Besta vinkona þekkir leyndarmál þín,

skilur ótta þinn og

deilir með þér draumum þínum.

 

Besta vinkona hættir aldrei að trúa á þig

Jafnvel þó að þú gefist upp á sjálfri þér.

Þú ert þannig vinkona.

Og alveg sama hvað bjátar á,

verður ætíð í huga mínum.....

þú ert besta vinkona....

mín vinkona ævinlega.

 

Eitt að endingu er það ekki einstök tilviljun eða ótrúleg heppni þegar sami gestur á þessari bloggsíðu er nr. 7000, 10000 og 11000???? Nú verður sko rukkað um gestablogg Laughing

Sæl að sinni......

Ellen segir jćja......Auja

 

....og þá segi ég jamm. Af okkur mæðgum er bara allt gott að frétta, skólarnir loksins búnir en meira af því seinna í þessum pistli. Ég skrapp á djammið fyrir tveimur vikum síðan með henni Þórdísi Spútnikfrú og fleiri góðum konum og það var hrikalega gaman.

Lena fór í skólaferðalagið með 10.bekk í síðustu viku sem voru 4 dagar og hún kom heim sæl og ánægð. Þau fóru í rafting, adrenalíngarðinn, paintball, bíó og fleira skemmtilegt. Kvöldið sem þau komu heim var farið með foreldrum á Greifann á pizzahlaðborð, mjög gaman og ánægjuleg kvöldstund.

Um síðustu helgi þá hittumst við hérna heima hjá mér þær sem útskrifuðust sem sjúkraliðar um leið og ég, en því miður gátu ekki allar komið. Við áttum alveg frábæra kvöldstund þar sem var mikið drukkið, borðað, sungið, farið á ball og endað í sjoppu með hamborgara. Varla hægt að hugsa sér það betra og það sem meira var....lítil þreyta daginn eftir. Einhverra hluta vegna eru hérna hjá mér óskilamunir eftir partýið.....kannast einhver ykkar við rauða háhælaða skó, lime, myntulauf, breezer og bacardi flösku svo eitthvað sé nefnt?????? Þetta var algjör snilld sérstaklega þegar við vorum búnar "að opna okkur" í singstar ABBA og 80´s


Í gær voru skólaslit hjá Lenu Rut við hátíðlega athöfn í Glerárkirkju og kaffisamsæti á eftir. Hún fékk flottar einkunnir og hún má svo sannarlega vera stolt af þeim, meðaleinkunn rúmlega 7. Mér fannst svo skrýtið í gær en jafnaði mig á því í dag að hún er útskrifuð úr grunnskóla og á leiðinni í framhaldsskóla í haust......ég er nýbúin í framhaldsskóla sjálf. Skólaslitin voru hjá Ölmu í morgun og sú fékk frábærar einkunnir......fjórtán níur og 9,5 af ég man ekki hvað mörgum fögum....bara glæsilegt hjá stelpunni. Ég er svo rosalega stolt af þessum gimsteinum mínum að ég bara varð að monta mig smá.

Þetta er bara orðið gott núna....góða sjómannahelgi, gangið hægt inn um gleðinnar dyr.

Sveitafríiđ mittAuja

 

Á föstudaginn fyrir viku síðan fóru ég og stelpurnar í sveitina í sauðburð, Hildur Rún vinkona hennar Lenu kom með okkur og það var svooo gaman hjá okkur. Við byrjuðum á því að koma við á Breiðumýri í nýja húsinu þeirra Stjönu og Friðgeirs, og það er líka svona fínt og flott. Í sveitinni var sauðburðurinn hálfnaður og því nokkuð mikið að gera, við mæðgur eigum okkar kindur og erum bara nokkuð ánægðar með lömbin sem við fengum. Stelpurnar voru mjög duglegar að hjálpa til og það þurfti nú ekki mikið að ýta á þær að hlaupa út í fjárhús til að gá hvort einhver væri að bera. En það er ekki alltaf sæla í sveitinni, það nefnilega dó ein kind úr júgurbólgu og hún átti eitt einn lambhrút. Svo að núna er honum gefin mjólk úr pela og var það eitt af hlutverkum Ölmu að gera það. Lambið var fljótt að átta sig á því að það væri gaman að elta stelpurnar og þær léku við hann eins og hvolp. Þær fóru síðan heim á sunnudeginum en ég var áfram og kom heim á miðvikudaginn. Á mánudaginn þá hitti ég Hörpu vinkonu mína sem var að koma frá Egilsstöðum og hún kom með mér heim í Grímsstaði í kaffi. Ég fór síðan til Stjönu niður í Breiðumýri á þriðjudagskvöldið og gisti hjá þeim Friðgeir. Um kvöldið fórum við í bíltúr um sveitina, svona sveitatúr og komum við hjá Margréti sem er gömul vinkona mín. Þar fengum við kaffi og úr varð hin skemmtilegasta heimsókn. Við Stjana höfðum það virkilega gott og gaman, fórum að sofa í seinni kantinum en vorum vaknaðar snemma morguninn eftir. Ég fór síðan til Akureyrar í hádeginu því vaktafríið mitt var búið og komið að vinnu.

 

Hef þetta ekki lengra núna......og enda á þessum orðum:

 

Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.

Góða helgi Laughing

Brosađ breittAuja

Þær voru ansi brosmildar og ánægðar dætur mínar þegar þær klæddust mótórhjólagöllum og stigu upp á mótórhjól núna áðan. Pabbi þeirra og bróðir hans fóru rúnt með þær....og það leiðist þeim ekki, skiljanlega....þetta er svo sjúklega gaman. Ég tók nokkrar myndir og setti inn í albúmið.

Fleira var það ekki í dag Laughing

Skrifleti....Auja

 

Það er einmitt orðið sem hefur einkennt eiganda þessarar bloggsíðu upp á síðkastið. Ég sit og pikka og skemmti mér yfir dætrum mínum sem eru að fara á kostum í ABBA Singstar.....bara snillingar. Spurning hvort ég eigi ekki bara að taka lagið með þeim....he he he Laughing Og talandi um snillinga þá er hún Alma mín algjör snillingur og hrakfallabálkur með eindæmum. Síðasta fimmtudag sótti ég hana til Ásdísar vinkonu sinnar eftir að hún meiddi sig á trampolíni. Fór með hana á slysó þar sem vinstri ökklinn var bólginn og marinn, en hún brotnaði einmitt á þessum fæti 2006. Svo að mér leist nú ekki á blikuna.....hún var ekki mynduð þar sem starfsfólk myndgreiningar (röntgen) var farið úr húsi loksins þegar við komumst að hjá lækni og þar sem ekkert annað lá fyrir að mynda var hún meðhöndluð eins og um brot væri að ræða, sett í gifs upp að hné og við sendar heim Frown Á laugardagsmorguninn fór ég síðan með hana í myndatöku og í ljós kom ekkert brot....sem betur fer....mikið var ég fegin og hún líka Laughing Hún var samt sett í gifsspelku sem má taka af í dag eða á morgun. Þórunn yngri Bomsusystir mín, Haddi hennar ektamaður, Imba og Börkur Heikir komu við í kaffi hjá mér á laugardaginn, en Binnsan mátti ekki vera að því að koma því það var svo brjálað að gera hjá henni í sauðburði í sveitinni. Ég er búin að vera í 5 daga vaktafríi sem er svooo notalegt og er sú sæla búin á morgun. En þá fæ ég bara annað til að gleðjast yfir....elskuleg móðir mín er á leiðinni norður yfir heiðar í kvöld og ætlar að vera hérna fram á föstudag. Jæja eitthvað hefur nú losnað um letina og þetta bara orðið ágætt blogg hjá mér þó að ég segi sjálf frá. Mig langar til að deila með ykkur sendingu sem ég fékk um daginn í tölvupósti og er mjög fallegt.

 

Kæri vinur
Vertu áfram þú sjálfur
Þú ert vinur minn og sannur vinur
Vegna þess að þú ert þú sjálfur
Vináttan felst í því að vera sannur
Þú ert sannur
Og þess vegna ertu vinur minn
Ég met það mikils að eiga þig sem vin
Þú ert vinur minn að eilífu
Ekkert getur breytt því
Því að þú ert þú sjálfur
Og munt vera það vinur minn
Kæri vinur
Mér þykir vænt um þig
Farðu því vel með þig.

Gleđilegt sumarAuja

Þökk fyrir þennan vetur,
þökk fyrir brosið þitt.
Þú hefur sól og sumar,
sent inn í hjartað mitt.


19. apríl 1984....Auja

 

Jaahhháááá.......í dag eru víst 25 ár síðan ég fermdist og þá bar þennan dag upp á skírdag og sumardaginn fyrsta, sniðugt að skella saman í tvo frídaga...það hefur örugglega sparast mikið á því á þessum árum. Í minningunni var þetta ágætis dagur með fjölskyldu og vinum, en það verður ekki tíundað hér hvað fermingarbarnið fékk í gjafir enda margar löngu gleymdar. Ég fæ hroll þegar ég sé myndir af mér á fermingardaginn....Embarassed finnst ég svo asnaleg að það hálfa væri nóg, en hverjum finnst það ekki seinna meir??? Reyndar datt mér í hug að setja hérna inn myndir af okkur fermingarbörnunum Smile  sem fermdust þennan dag en það er ekki hægt að gera nokkrum manni það. Fyrir utan að ég held að þau hin yrðu nú ekki par hrifin heldur með það uppátæki mitt Tongue out

 

Fleiri verða orð mín ekki í dag......

Tíminn líđur og áriđ líka....Auja

 

Það er meira hvað tíminn líður hratt....kominn miður apríl sem er reyndar mjög gott því það styttist í vorið og sumarið. Mér finnst einhvern veginn eins og þessi vetur sé búinn að vera óvenju langur.....eða hann var það alla vega í smá tíma, mér fannst tíminn líða hægt og allt svo dimmt og drungalegt. En það hefur snarlega breyst sem betur fer og vonandi kemur fólk vel undan vetri. Ég held að ég komi ágætlega undan snjó og klaka....

 

Páskarnir liðnir og ég var að vinna þá alla eins og í fyrra, svona er að vera í vaktavinnu.... Reyndar er mér alveg sama hvort ég vinn um jól, áramót eða páska. Og núna er ég ánægðust með það að vera komin í 5 daga frí......jeri, jeri, jer Laughing 

Ég kíkti "aðeins" á djammið um helgina með Heiðrúnu og Þórdísi, við hlógum mikið og skemmtum okkur vel....hreint alveg magnað Tongue out

 

Á deildinni í vinnunni minni er gamall maður (ótrúlegt þar sem ég vinn á dvalarheimili) sem er fæddur og uppalinn á Siglufirði og hann þekkti skyldfólk mitt sem bjó þar í "gamla daga" og hann hefur sagt mér eitt og annað um það. Um daginn lét hann mig hafa lítið blað og á henni er vísa eða ég held að það flokkist undir vísu er samt ekki viss, en sagan á bak við hana er svona:

 

Gunnlaugur Hjálmarsson samdi þetta um dóttur sína Gígju sem seinna giftist Birni Björnssyni skipstjóra og síðar hafnarverði á Akranesi. Þegar hún var barn var hún með snuð langt fram eftir aldri og þá orti pabbi hennar þetta:

 

Tvítug verður túttu rófa

töltandi út um alla móa

með eitthvað lafandi út úr sér

þá fara allir hátt að hlægja

og hendast svo til næstu bæja

og benda á hvar fröken tútta fer.




Með góðum huga hafið sjálft má brúa - Einar Ben

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Auja
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Sjúkraliđi/nemi
  • Um mig: Ég er fćdd og uppalin í Mývatnssveit, á tvćr yndislegar dćtur og vinn viđ umönnun.